top of page

Silkiþrykkt

LISTAVERK

SILKIPRENTVERKIN eftir Markús Bjarnason eru framleidd á vinnustofu Stúdíó Suðs í Reykjavík. Hand prentuð / silkiþrykkt á náttúrulegt hör, innihalda hljóðdempandi þéttull og eru römmuð inn í gegnheila eik.

Silkiprent er um þúsund ára gömul aðferð sem á rætur sínar að rekja til Kína og er enn í dag notuð um allan heim. Hönnun handmáluð og síðan handprentuð þannig engin tvö verk eru nákvæmlega eins.

​

Verkunum má raða og tengja saman á ótal vegu sem gerir þér kleift að aðlaga þau að þínu umhverfi. Þéttullinn dempar óæskilegar tíðnir og bætir hljóðvistina í rýminu á ósýnilegan hátt. Verkin eru númeruð og merkt. Hafið samband til að nálgast verk á arney@studiosud.is.

Tif_Silk.webp

Tif  │ 92 × 46 cm



Silkiprent á hör
Inniheldur þéttull

Gegnheil eik

69.000 kr

​

Murr_Silk.webp

Murr  │ 92 × 46 cm



Silkiprent á hör

Inniheldur þéttull

Gegnheil eik

69.000 kr


Klikk_Silk.webp

Klikk  │ 92 × 46 cm



Silkiprent á hör

Inniheldur þéttull

Gegnheil eik

69.000 kr


Hnútur_Silk.webp

Hnútur  │ 62 × 42 cm



Silkiprent á hör
Inniheldur þéttull

Gegnheil eik

49.000 kr

​

Málverk

hljóðvistina

SEM BÆTA

MÁLVERK eftir Markús Bjarnason (f.1994) innihalda hlóðdempandi þéttull og bæta því hljóðvist þeirra rýma sem þau prýða. Markús er menntaður í grafískri hönnun og sjónrænum samskiptum frá Listaháskóla Íslands. Hann hefur á undanförnum árum unnið á mörkum hönnunar og listar og skapað fjöldann allan af einstökum hljóðdempandi málverkum.

​

Reglulega má sjá málverkin á einka- og samsýningum. Á vinnustofunni má einnig sjá nýjustu verk Markúsar sem eru laus hverju sinni, stór sem smá. Úrvalið breytist ört og verkin staldra oft stutt við. Alltaf er hægt að koma í heimsókn á vinnustofuna til að skoða verk í persónu.
 

SÉRPÖNTUN sérsniðin að þínu rými. Markús tekur við sérpöntunum, smíðar og málar málverk í þeirri stærð sem þig dreymir um. Hafðu samband á arney@studiosud.is fyrir frekari upplýsingar um listaverkin, sérpantanir eða til að bóka heimsókn á vinnustofuna.

Rölt í Rigningu.webp

Rölt í rigningu  │ 300 × 146 cm

​​

Málverk

Akrýl á hör

Inniheldur þéttull
Gegnheil eik
​​
​

Ósýnilegur

HÁTALARI

MÁLVERK með innbyggðum hátölurum. Hátalararnir leynast á bak við hörið og eru því ósýnilegir. Eftir stendur hljóðdempandi málverk sem hefur jákvæð áhrif á hljóðvist rýmisins og getur fyllt rýmið af hljóði.

 

Hugmyndin byggir á ósýnilegri virkni; einhverju sem er til staðar þó maður sjái það ekki. Hvert verk er handsmíðað og málað af Markúsi og rammað inn í gegnheila eik.

​

Myndlist, hljóðvist og hátalari í einu verki.



SÉRPÖNTUN sniðin að þínu rými. Einnig er hægt að sérpanta málverk með innbyggðum hátölurum í þeirri stærð og útfærslu sem hentar rýminu. Hafðu samband á arney@studiosud.is fyrir frekari upplýsingar.​

Draugur 1 Large.webp

Draugur 1  │ 128 × 87 cm

​​

Málverk

Akrýl á hör

Inniheldur þéttull

Innbyggðir hátalarar
Gegnheil eik
​​
​

Alltaf velkomið að heyra í okkur og kíkja á vinnustofuna til að sjá verkin í eigin persónu og heyra hvernig þau virka.

© Stúdíó Suð

101 Reykjavík

arney@studiosud.is​​​

s. 6189633

bottom of page